View Profile
Hildur Vala Baldursdóttir
- 32
ára
- Leikari, Dansari & Söngvari
Hildur Vala Baldursdóttir útskrifaðist úr leiklistardeild LHÍ árið 2019. Eftir útskrift hóf hún störf í Þjóðleikhúsinu og tók við titilhlutverkinu í Ronju ræningjadóttur. Hún leikur í Sem á himni í Þjóðleikhúsinu í vetur. Einnig lék hún í Kardemommubænum, Nashyrningunum, Ör (eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur), Meistaranum og Margarítu, Atómstöðinni – endurliti og Útsendingu. Áður en hún hóf nám í LHÍ lék hún og söng í ýmsum söngleikjum í Borgarleikhúsinu. Hún lék í stuttmyndinni Skeljum og leikur í annarri og þriðju þáttaröðinni af Venjulegu fólki.