Lokað á skrifstofu FÍL í dag vegna veikinda
Hann er bara kominn, veturinn með alla sína dýrð, veðraham og ótrúlega hæga umferð... flensurnar eru líka mættar og vegna þeirra er skrifstofa FÍL lokuð í dag, fimmtudaginn 17. nóvember. Vonum að það ástand gangi fljótt yfir og bendum á að við svörum tölvupósti eftir bestu getu.
Kær kveðja Birna og Hrafnhildur