Andlát; Stefán Karl Stefánsson
Stefán Karl Stefánsson leikari lést þann 21. ágúst eftir tveggja ára glímu við illvígt krabbamein.
Á Twitter skrifaði Stefán Karl;
„Tíminn er það dýrmætasta í lífinu því hann kemur aldrei aftur og hvort sem að maður eyðir honum í örmum ástvina eða í fangelsisklefa, þá er lífið það sem að maður nýtir tímann í. Látið ykkur dreyma stóra drauma.“
Með sorg í hjarta kveðjum við ungan og hæfileikaríkan listamann og sendum Steinunni Ólínu, fjölskyldu hans og fjölmörgum ástvinum innilegar samúðarkveðjur.
Stjórn Félags íslenskra leikara